Friday, July 02, 2004

Nú er heimurinn allur undir ...

Í dag er stigið stórt skref. Nú geta allir notið þeirra gullkorna sem verða til í hugskoti mínu, hvar í heimi sem er en ekki eingöngu þeir sem eru svo lánsamir að vera staddir í næsta nágrenni við mig þá stundina. Þó er sá hængur á að þetta er eingöngu bundið við þá sem lesa og skilja ástkæra ylhýra en, ... eins og við vitum er það besta tungumál í heimi þannig að það er þeim sjálfum fyrir bestu að læra tunguna.

1 Comments:

Blogger ærir said...

Nú er enginn óhultur, það er alveg rétt. Hvar svo sem þeir eru í heiminum. Og nú er ég búinn að prófa ýmislegt við bloggsíður, þar á meðal að hafa upp á þér, -fingurbjörg. Kannski eitthvað fleira komi fram á þessari ágætu en stuttu síðu. Með kveðjum

11:09  

Post a Comment

<< Home