Tuesday, August 15, 2006

Ævintýraferð

Fór í gærkvöldi með ágætum vinum í hestaflutninga. Átti að sækja tvö hross í tamningu (Greifa og Hálfmána) og eitt reiðhross fyrir mig (Glóa). Vinirnir ætluðu að sækja þrjú í tamningu og eitt reiðhross fyrir frúna. Ferðin fór svona, í stuttri samantekt:

  • Kerran mín valt á hliðina í sviptivindi undir Ingólfsfjalli. Engin meiðsl urðu á fólki eða skemmdir á öðrum eignum.
  • Hrossin voru erfið í rekstri og tókst ekki fyrr en í fjórðu tilraun að koma þeim í gerðið, eftir að múll var settur á einn slægan, leirljósan og hann teymdur. Stóðið elti. Sá leirljósi reyndi markvisst og ítrekað að slá mig, náði í tauma sem ég var með í hendi en ég sjálf slapp.
  • Í gerðinu tókst nokkuð vel að koma Hálfmána á bíl en eitt hrossið sem vinirnir sóttu, tveggja vetra hryssa þeim fædd, stökk yfir gerðið nokkrum sinnum og braut það niður á einum stað. Með einstakri harðfylgni og lagni tókst að koma henni á bílinn, að lokum, eftir maarrrggggaaar tilraunir.
  • Heimferð var ekki söguleg að öðru leyti en því að litla hryssan sem vinirnir sóttu reyndist vera eign bónda í sveitinni. Hryssan þeirra er enn í góðu yfirlæti í haganum.

Já, það fer ekki alltaf allt eins að var stefnt.



1 Comments:

Blogger Fingurbjörg said...

Myndin er tekin af vef Sunnlenska fréttablaðsins, http://www.sunnlenska.is/

09:47  

Post a Comment

<< Home