Um fingurbjörgina ...
Ég var afskaplega lítil fædd, fædd tíu dögum fyrir tímann og sennilega það sem kalla má léttburi, enda móðir mín nokkuð illa haldin af meðgöngueitrun. Áður en ég fæddist ræddu foreldrar mínir oft um litla ófædda ungann, eins og gengur og gerist hjá verðandi foreldrum. Þau nefndu mig aldrei annað en -björg, eftir móðurömmu minni, það hvarflaði aldrei að þeim að ég yrði drengur. Síðan þegar ég var fædd notuðu þau gælunafnið fingurbjörg, með vísan til þess hversu lítil ég var, og mér hefur alltaf þótt dálítið vænt um það.


0 Comments:
Post a Comment
<< Home