Monday, August 21, 2006

Keppnisskap

Við strákarnir mínir fórum í keilu í gærkvöldi. Strákarnir voru nú ekki smeykir við að fara með mömmu sinni, það var nú lítið mál að vinna hana mömmu. Þó kom fljótt í ljós að það var ekki auðsótt mál, ég var fljót að taka forystuna. Þá fóru drengirnir að svitna, brosið hvarf af andlitinu, farið var að spýta í lófana, fækka fötum og hnykkla vöðvana. Það hafðist, að lokum, þeir héldu andlitinu, mamma vann ekki en hún lét þá finna fyrir því.

Síðan fórum við á kaffi París, þeir þurftu að hita upp fyrir Parísarferðina sína. Notaleg kvöldstund í góðum félagsskap.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home