Patti Smith
Við mæðgin, ég og frumburðurinn, deilum mörgu, þar á meðal aðdáun á hæfileikum vinkonu okkar hennar Patti Smith. Hún hefur einhverja stórkostlegustu rödd sem ég hef heyrt í. Þessi grannvaxna kona kann að spila á röddina sína, hún fyllti stóra salinn í Háskólabíói. Hún og gítarleikarinn hennar, hann Lenny K. Og Jessica dóttir hennar á hljómborð. Og Einar Örn poppari á einhvers konar smátrompett.
Þrjátíu ára gömul lög, sum eldri, önnur yngri, lifa enn. Þetta er klassík.
Þrjátíu ára gömul lög, sum eldri, önnur yngri, lifa enn. Þetta er klassík.


1 Comments:
Mér þótti best, þegar Einar Örn blés af öllu afli í trompettinn en stóð of langt frá hljóðnemanum, þ.a. ekkert heyrðist. Maður horfði á hann undrandi og hló innra með sér að því hversu rangeygður hann var og rauður í framan af rembingi.
Post a Comment
<< Home