Af bjartsýni og vinnusemi
Ég er alltaf svo bjartsýn og jákvæð og tek vel í nýjar hugmyndir. Stundum kemur það mér í bobba, eins og þegar ég sagði: „Já, já, ég skal leiðbeina lokaverkefnisnema …“; eða: „Já, já, ég skal stýra rannsóknarverkefni um hagnýta eiginleika …“; eða: „Já, já, ég skal stýra rannsóknarverkefni um vinnslu á malarefni … “; eða: „Já, já, ég skal annast íslenska hlutann af evrópsku verkefni um sjálfbærni í byggingariðnaði …“; eða: „Já, já, ég skal stýra rannsóknarstofunni og gera hana að þeirri bestu á Íslandi og þótt víðar væri leitað …“.
Nú er komið að skuldadögum. Ég orðin hauglöt, nenni ekki að vinna nema til fjögur/fimm á daginn og alls ekki um helgar og verkefnin sum rétt aðeins hálfvolg. Kennslan að hefjast og öll ofangreind verkefni á eindaga til viðbótar við öll þau verkefni sem detta inn á borð til mín og þarf að leysa núna. Samt veit ég að þetta hefst allt. Ég hef gott fólk með mér sem bæði tekur leiðbeiningum og getur unnið sjálfstætt. Sjálf er ég þjálfuð í að skipuleggja „erfið“ verkefni og ná kjarnanum út úr þeim. Nú er komið að því að bretta upp ermar og skila afurðunum. Ef ég væri bara ekki svona löt …

0 Comments:
Post a Comment
<< Home