Friday, October 27, 2006

Tónlistin eykur listina ...

Það er svo mikil lífsfylling fólgin í tónlist. Undanfarið hafa synir mínir verið að kynna fyrir mér ýmislegt sem er nýtt fyrir mér í heimi tónlistarinnar (lesist: ég er að verða þolinmóðari og umburðarlyndari), bæði beint og óbeint. Og þvílík upplifun! Það er svo gaman. Um daginn kom t.d. litli kallinn minn óvænt heim (þ.e. fyrr en ég átti von á honum) þegar ég hafði gefist upp fyrir tónunum og var farin að dansa og dilla mér um allt hús*. Ég hugsaði: „Ó, shi........ “ en ákvað að halda mínu striki þótt hann kæmi að mér í þessum ham. Drengurinn sagði: „Mamma!!!!!“ og fór svo að dansa við mig.

Ef þetta er ekki lífið þá veit ég ekki hvað lífið er.

* (Þetta er nú reyndar ekki í fyrsta sinn sem hann kemur að mér í viðlíka ham.)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home