Thursday, October 19, 2006

Veiðieðli

Frumhvatirnar eru sterkar. Svo sterkar að stundum kemur maður meira að segja sjálfum sér á óvart. Veiðieðlið er ein af frumhvötunum. Um daginn var ég í miklum veiðihug. Ég lá lágt, skoðaði bráðina, mat aðstæður, lagði snöruna en bráðin slapp mér úr greipum. Það var mjög sárt. Hið óhugnanlega var þó hvað ég hafði gaman af þessu.

Núna er næsta atrenna. Ekki jafn skemmtileg bráð en samt veiði.

1 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Þolinmæði er einn af mikilvægustu eiginleikum góðra veiðimanna, að kunna að liggja lágt og bíða, stökkva síðan þegar ....

Ég er sum sé búin að veiða ;-))

Ligg nú og sleiki út um, flugurnar flykkjast að mér og þeim fylgja fleiri góðir hlutir, það er sum sé ekki sultur í búi.
f

11:15  

Post a Comment

<< Home