Sunday, November 26, 2006

List


Ég fór á útgáfutónleika Fabúlu á föstudagskvöld. Það var mjög skemmtilegt, góður flutningur og frábærir tónlistarmenn. Það var einstaklega gaman að fylgjast með Sigtryggi Baldurssyni, sjá hvað hann hefur mikið vald á list sinni og hvað hann er dýnamískur - hann var senuþjófur kvöldsins.

Við rp vinkona fórum síðan á flakk í gær. Það er alltaf ákaflega skemmtilegt. Í þetta sinn voru sýningarnar sem við ætluðum á lokaðar eða búnar svo í staðinn skoðuðum við föt sem eru listaverk á sinn hátt - t.d. hjá Elm, í Spaksmannsspjörum, hjá Max Mara og Sævari Karli. Og prísuðum okkur sæla fyrir allar þær upphæðir sem við spöruðum með því að kaupa ekki neitt (nema sitt sokkaplaggið hvor).

Nú sit ég og les (hroðalegan) texta sem ég veit ekki hvort er viðbjargandi (hann er ekki list, ég tapa lyst) og hlusta á tónlist að vali strákanna minna. Ég er farin að átta mig á því að englarnir mínir segja satt þegar þeir halda því fram að Sufjan Stevens sé einstakur listamaður og einn sá fremsti í sinni röð. Einnig að mér líkar við the Verve, Air, Shivaree og Death Cab for Cutie „to name but few“. Í staðinn hef ég kennt þeim að meta ýmsar eldri perlur (t.d. Patti Smith og Tom Waits) og, kannski það sem er mikilvægast og ég er að smakka á núna, að vera vakandi fyrir nýju og ýta fordómum til hliðar, a.m.k. annað slagið.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home