Saturday, December 31, 2005

Af framkvæmdum og drift

Framkvæmdir geta tekið tíma. Í desember fyrir tveimur árum var eiginmaður minn á námskeiði erlendis. Einn morguninn vaknaði ég frekar snemma (eins og hendir mig stundum), gerði nokkrar leikfimiæfingar á gólfinu, setti í þvottavél, þreif lítillega og bakaði eina smákökusort áður en ég mætti í vinnu kl. 8. Síðan kom eiginmaðurinn heim og það átti að taka á móti honum með stórsteik en þá var ofninn bilaður og hefur ekki virkað síðan. Það hafði reyndar staðið lengi til að skipta út eldavélinni, hún var orðin gömul og ýmislegt að bila. Það var ljóst að ekkert yrði gert í málum í desember, svona rétt fyrir jólin. Jólamatnum var bjargað með humri (rjúpnaveiðibann nýgengið í gildi) og síðan hafa ekki verið jól nema humar a la eiginmaðurinn sé í matinn. Nema hvað, ég fann þessa líka dýrindis eldavél (helluborð og ofn í tveimur stykkjum) á góðu verði og keypti þetta í janúar. Vandamálið var bara hvað átti að gera við eldhúsið? Það þurfti að skipta út borðplötu til að koma nýju græjunni fyrir og enginn af þeim smiðum sem okkur tókst að draga heim í eldhús vildi bara skipt um borðplötu. Þeir vildu breyta þessu hér og hinu þar. Nýja græjan var sótt í maímánuði, þá var kominn jeppi á heimilið sem rúmaði græjuna. Svo leið og beið, ég haldin sjúklegri fælni yfir því hvað átti að gera við eldhúsið. Að lokum var ákveðið að henda út nokkrum neðri skápum úr gömlu innréttingunni en halda þeim efri (það var eftir að búið var brjóta niður veggi í huganum og sameina eldhús og stofu, fallið var frá þeirri nýtísku hugmynd). Smiðurinn var valinn, völundur einn mikill og listamaður í höndum og hestamaður góður sem ekki var verra. Hann var búinn að lofa sér í einhver verkefni en innréttingin átti að vera komin upp fyrir jól. Svo komu jólin en engin innrétting og enginn nothæfur ofn (= engar smákökur sem synirnir hörmuðu mest af öllu). Í janúar í upphafi þessa árs dró loks til tíðinda, innréttingin smíðuð, búið að sprautulakka hana og allt tilbúið og svo komst allt upp. Þegar upp var staðið var einn efri skápur eftir af gömlu innréttingunni, hann fékk náðarsamlegast að halda sér vegna nostalgíunnar einnar. Nýr ísskápur og uppþvottavél komu síðan í ágúst en hurðin framan á uppþvottavélina kom ekki fyrr en nú í dag. Og mikið eigum við stílhreint, fallegt og gott eldhús. En mikið tók það langan tíma!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home