Hann hressir, tesopinn!
Það rifjaðist upp fyrir Fingurbjörgu saga frá samstarfskonu minni einni og ágætri vinkonu (var í forsætisráðherra heimsókninni hér um daginn). Móðir hennar var á ferðalagi í Perú og fékk sér eitt sinn tesopa sem var afbrigðum góður og hressandi, svo hressandi að hún keypti sér dágóðan slatta af telaufum til að fara með heim á klakann. Síðan var hún iðin við tedrykkjuna og hresstist mjög í hvert sinn. Einhverju sinni háttaði svo til þegar þær vinkonurnar voru búnar að drekka góðan slurk að þær fóru að lesa innihaldslýsinguna. Þetta voru kókalauf!


2 Comments:
Ærir hefur reynt að takast á við kaffifíkn að undanförnu og kom með að heiman forláta tesíðu úr bambus og telauf. Er það hressingadrykkur hin besti enda kenndur við Earl lávarð. Ærir hefur ekki lesið smáaletrið á boxinu en ætti kannski að gera það. Annars í morgun prófaði Ærir nýjasta æðið frá BNA eða annarstaðar en það er te-latte. Te með flóaðri mjólk og reyndar froðu líka. kannski er það capu-te!
Fingurbjörg hefur hingað til haldið sig við Earl lávarð án mjólkur en capu-te hljómar vel. Kannski það verði prófað næst?
Post a Comment
<< Home