Grágrýti og kargi
Eða ólivín basalt? Er að bögglast við loggana, vildi frekar fá leggina. Búin að velta þessu á undan mér vikum saman, mánuðum saman. Fyrst þurfti að skipuleggja ferðina til London (sem tókst reyndar einstaklega vel, besta árshátíðin erlendis til þessa, sumir segja besta árshátíðin „ever“ og ég átti stóran þátt í því), svo þurfti að eyða nokkrum millum í dót. Nýjasta afsökunin er sú að það þarf að finna pláss fyrir nýja dótið, smíða sérstyrkt borð undir það o.s.frv. Er ég ekki dugleg að finna mér afsökun til að koma mér undan loggunum? En ég held að ég komist ekki upp með það lengur, enda sit ég sveitt við og vonast til að finna andann koma yfir mig. Kannski að andakrafturinn í kjötsúpu Æris hjálpi til?


0 Comments:
Post a Comment
<< Home