Saturday, January 14, 2006

Tæknivædd kona

Ég er að verða ótrúlega tæknivædd. Það er ekki nóg með að ég sé búin að sigrast á Microstation (í algjöru grunnformi, nota bene!), gInt (þrátt fyrir nokkra örðugleika) og geti fiktað mig áfram við formateringar í Access, heldur er ég að læra á msn og Project. Hvar endar þetta? Svo kann ég náttúrulega að bora í vegg og flísaleggja, enda ákaflega jafnréttissinnuð á borði (ekki endilega í orði enda finnst mér almennt betra að láta verkin tala frekar en orðin, ekki svo leikin í þeim). Svo kaupi ég kallatæki (þríása og skerbox) og stýri köllum í Dótalandi (og líka stelpum) en er samt ótrúlega kvenleg, get ekki lengur afneitað því að ég er kona, orðin of kvenlega vaxin með árunum. Það er af sem áður var þegar ég fékk kallalykil í sundlaugunum.

4 Comments:

Blogger ærir said...

svo áttu líka tívolí grærjur.

09:32  
Blogger Fingurbjörg said...

Já, tækniáhuginn leynist víða, eitthvað virðast synirnir hafa erft af honum.

09:40  
Blogger ærir said...

Til er sú saga af Fingurbjörgu og eiginmanni hennar sem hefur fleiri þumalfingur en fingurbjargir geta mögulega varið. Sagan lýsir ágætlega verkaskiptingu á heimilinu í den og kannski enn. Þannig bar undir eitt sumar að ákveðið var að hefja framkvæmdir við sólpall og í það starf fenginn heimilisvinur og kennari sem er með allra handlægnusut mönnum. Hann vill þó hafa með sér aðstoðarmann og er það gjarnan skilyrði hans, því hann nennir ekki að vinna hjá leiðinlegu fólki en ef það getur boðið upp á skemmtilegheit og sé skrafhreifið þá er hann til í slaginn. Hann kom, og ekki í fyrsta sinn til að smíða fyrir okkur. Fingurbjörg átti þá eitthvað leyfi en eiginmaður hennar var að venju vant við látinn við störf utan heimilis og sást lítið þessa daga, vikur og ár. Hann reyndi þó að gera sig gildandi af og til í smá viðvikum.


En svo bar við einn dag að tengdaforeldarar eiginmannsins og foreldrar fingurbjargar áttu leið um hverfið og litu við. Fundu þau dótturina og smiðinn í miklum hamagangi við að vega stórgrýti upp úr holum svo koma mætti undirstöðum undir sólpallinn. Var bæði beitt hyggindum og kröftum enda höfðu þau bæði nóg af því. En tengdasoninn fundu þau upp í eldhúsi með svuntu framan á sér við að strauja skyrtur og undirbúa mat eða kaffi. Þótti tengdaforeldrunum þetta nokkuð skondin uppákoma og höfðu á orði þegar dóttirin kom inn moldug upp fyrir haus að ólík hefðumst þau að hjónakornin á þessum bæ. Sneiðin skyldist og var tengdasonurinn skömmustulegur en dóttirin nokkuð ánægð með sína frammistöðu, - enda kjarnorkukona eins og sjá má á þessu bloggi.

11:33  
Blogger Fingurbjörg said...

Það er margt sem leynist í skotinu ef vel að gáð. Eiginmaðurinn hefur nú ekki eingöngu þumalfingur. Gifsbitarnir eftir loftinu endilöngu eru til vitnis um það en eiginmaðurinn spartslaði og pússaði hornin á þeim af þvílíkri eljusemi og natni að aðdáunarvert er, 20 m alls.

11:59  

Post a Comment

<< Home