Thursday, January 05, 2006

Afi minn fór á 'onum Rauð

Og svo kom hann í kaffi til mín. „Áttu ekki til kaffi handa mér, ...bb... mín?“ og svo hló hann digurbarkalega eins og honum einum var lagið. Þá átti ég iðulega til nýlagað kaffi og oftar en ekki nýbakaða súkkulaðiköku eða marmaraköku eða aðra köku með. Þetta var okkar „ritúal“ á laugardagsmorgnum þegar ég var 10, 11, 12 ára. Hann átti að vísu ekki Rauð sjálfur, fékk hann lánaðan hjá mági sínum, sá fylgdi oft með í kaffið og stundum aðrir líka. Þetta voru indælar stundir.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home