Friday, May 26, 2006

Frumskógur

Í tiltektinni í dag réðist ég til atlögu við frumskóginn í stofunni minni, rúmlega 4 m háa jukku sem var í sárri þörf fyrir snyrtingu af ýmsu tagi. Ég hef verið að safna kjarki í marga mánuði. Dreif mig loks niður í bílskúr og náði í stigann, stóð í efstu tröppunni og barðist við plöntuna. Ég er öll krambúleruð í framan eftir baráttuna. Að ég tali nú ekki um handleggina.

Eftir stendur jukkan hálfnakin, það er ekki nema von að hún hafi barist hetjulega gegn mér til að verja nekt sína.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home