Skýfall og fleira framandi
Í Póllandi er annað hvort uppstytta eða skýfall, ekkert þar á milli. Og lendi maður í skýfallinu verður allt blautt.
Yfirleitt eru ekki hjólför á götunum (betra undirlag? minni frost-þíðuverkun?) sem er betra fyrir okkur gangandi því bílarnir keyra á fullu framhjá gangandi vergfarendum þótt blautt sé.
Háralitur Pólverja er skrítinn: Ýmsir, sérstaklega konur, lita á sér hárið (lýsa það gjarnan upp). Þetta er allt annar litur en sést heima, gulur og stundum með appelsínugulum blæ. Mjög óekta. Rauðahárið er gjarnan með fjólublárri slikju.
Síðan er það tungutakið. "Tak, tak" heyrist í öðru hverju orði hjá annarri hverri manneskju. Eftir mikla rannsóknarvinnu frétti ég að þetta þýðir "já, já". Alvöru takk takk hljómar svona: "Dziękuję" - þeir sem ekki skilja núna segja: "Nie rozumiem".
Síðan er það bjórinn, hann er fullur af kvenhormónum. Þeir sem vilja vita hvernig það lýsir sér vinsamlegast hafið samband við undirritaða.

1 Comments:
Þetta þarfnast nánari útskýringa... kvenhormónar í bjórnum?
Post a Comment
<< Home