Friday, May 26, 2006

Teymisvinna

Undirbúningur fyrir stúdentsfagnað er í algleymingi á heimilinu um þessar mundir. Í morgun reif ég liðið á fætur fyrir allar aldir (kl. 11, telst ekki snemmt, bara stúdentsefnið sem var rifinn á fætur) og boðaði verkfund.

!

Var búin að skrifa tveggja síðna gátlista fyrir tiltekt og deildi síðan út verkum. Íhugaði meira að segja að setja verkið upp í Project en sá að mér við kröftug mótmæli heimilisfólks.

Nú í lok dags er rúmlega ein síða búin, ósköp lítið eftir. Gátlistinn svínvirkaði, karlpeningurinn að rifna úr stolti yfir afrekum dagsins. Það er búið að lesa listann svo oft yfir, eftir að verkum lauk og búið að merkja við, að hann er eiginlega orðinn götóttur af sliti.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home