Heimsókn til Þýskalands
Þegar ég var ung og sæt (ég er ennþá ung, og sæt líka, segja sumir) fór ég í boði vestur þýska ríkisins, BDR, í mánaðarferð um Þýskaland. Þetta var mikil lúxus ferð, allur kostnaður greiddur og vasapeningar að auki. Markmiðið var að þjálfa erlenda nemendur í þýsku. Við vorum þrjár sem fórum frá Íslandi, 33 allt í allt. Þarna voru krakkar frá Frakklandi og Hollandi, Sviss og Júgóslavíu, Líbanon og Marokkó. Allt skemmtilegir og hressir krakkar.
Tveimur vikum var varið í ferðalag um Þýskaland; Bonn, Köln, München og Berlín (fyrsta og síðasta vikan) og tveimur vikum var varið í faðmi fjölskyldu. Ég var í Saulgau hjá Ulli Schwarz, bræðrum hennar og foreldrum. Þetta var mikil upplifun fyrir íslenska „sveitastelpu“ úr Árbænum. Heimilisfaðirinn var læknir og fjölskyldan efnuð.
Þarna hafði ég mín fyrstu kynni af henni Patti vinkonu minni og síðar sonar míns líka. Ég varð svo hugfangin að ég keypti allar plöturnar hennar sem þá höfðu komið út. Sonurinn hlustar á plöturnar í dag, ég hlusta á geisladiska. Og á netinu. Og í tölvunni. Ég er meira að segja búin að hlaða niður laginu „Free Money“ á mitt svæði (mæspeis) ...

0 Comments:
Post a Comment
<< Home