Thursday, September 07, 2006

Kennslan

Nú er kennsla hafin hjá mér. Ég var með kvíðahnút í maganum í gærmorgun, hafði ekkert gefið mér tíma til að undirbúa mig en dreif mig í að skella nokkrum vel völdum myndum af netinu inn í glærupakkann minn. Síðan heppnaðist tíminn bara nokkuð vel, ég var afslöppuð og eyddi megin púðrinu í að tala um jarðfræði Íslands þótt það væri ekki meginþema fyrirlestrarins. Rökstuddi það með því að markmið kennslunnar væri að komast þangað. Ég hef gert þetta áður, þ.e. að taka fyrsta tímann í að kynna efni síðasta fyrirlestrarins og það hefur alltaf heppnast vel.

Á hverju ári hef ég lofað sjálfri mér því að eyða nú ekki miklum tíma í undirbúning kennslunnar en aldrei staðið við það loforð. Skyldi það takast núna? Það leiðir tíminn í ljós.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home