Sunday, November 26, 2006

Allt önnur Ella ...

Sögustundir með strákunum eru margar og alltaf jafn skemmtilegar. Uppáhalds sögurnar eru af þeim þegar þeir voru litlir. Ég veit ekki hvert okkar skemmtir sér best við þær. Í gærkvöldi rifjuðum við upp nokkrar, þar á meðal eftirfarandi sögu sem hér er sögð af honum sjálfum:

Ég var nýorðinn fimm ára og sumarið komið. Tími ævintýra, enda hafði ég hlítt á Óla Alexander fílibommbommbomm í nokkur ár. Mér datt það snjallræði í hug, að taka strætómiða og fimmhundruð krónur úr veskinu hennar mömmu. Ég hélt síðan rakleiðis út á stoppustöð og tók tíuna beint niður á Hlemm. Rölti þar inn á Wimpy's og fékk mér franskar og kók með rónunum. Spakur og óhræddur. Þaðan hélt ég, saddur, til Ellu og Önnu. Ella og Anna eru frænkur mínar, sem bjuggu þá á Grettisgötunni. Í sama húsi og ég bjó rúmlega fyrstu þrjú ár ævi minnar, þannig að þær voru vinkonur mínar og einstaklega góðar við. Mér til mikillar undrunar, þá tók á móti mér allt önnur Ella, en ég þekkti. Hún var hissa, en ekki vitund glöð að sjá mig, eins og ég hafði ímyndað mér. Hún lokaði mig inni og hleypti mér ekki út. Hringdi í pabba. Algjör gleðispillir. En nú voru góð ráð dýr. Ekki vildi ég láta pabba hirða mig skömmustulega héðan. Ég fór út á svalir og lét jakkann minn 'óvart' detta niður í garðinn. Strokuleið var fundin. Hins vegar var Ella klókari en ég að þessu sinni. Mér til undrunar hleypti hún mér ekki út í garð að sækja jakkann, heldur fór hún sjálf að sækja hann. Ég, þá nokkuð fúll yfir því að 'my masterplan' skildi ekki ganga upp, fékk að dúsa uppi í sófa. Mamma kom síðan hlæjandi og sótti mig. Það var eiginlega verra að láta hana hlæja að mér, heldur en að skamma mig.

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Þú hefur fundið þetta.

17:50  
Blogger Fingurbjörg said...

Ég er snillingur ;-)) ef þú ert ekki þegar búinn að átta þig á því ;-)) m

18:01  

Post a Comment

<< Home