Sunday, November 26, 2006

Kökuboð hjá systrum

Í Vikunni er innlit í kökuboð til systra minna. Þær eru snillingar í allri matargerð og kökubakstri. Reyndar snillingar almennt. Báðar syngja eins og englar og eru annálaðar hannyrðakonur. Þær hafa báðar ratað í ýmsa fjölmiðla sem viðmælendur o.fl. Báðar einstaklega traustar og tryggar. Í dag er svo afmælisboð hjá litlu dóttur hennar litlu systur minnar. Hún er 5 ára í dag. Við fengum öll skemmtilegt símtal í gær, ég og strákarnir mínir, þegar hún hringdi og bauð okkur í afmælið sitt. Frumburðurinn var sá eini sem var svo skynsamur að svara ekki í símann þannig að hann á upptöku af símtalinu, hún talaði nefnileg inn á talhólfið hans.

(Ég kann líka ýmislegt fyrir mér en ég get ekki sungið!)

3 Comments:

Anonymous Anonymous said...

en þú veist nú yfirleitt hvað þú syngur :)
kv. R

12:17  
Anonymous Anonymous said...

Það kemur fyrir ...
f

12:35  
Blogger Guðný Pálína said...

Ég keypti Vikuna af eintómri forvitni (var spennt að sjá hana Gurrí sem er gestur á blogginu mínu og blaðamaður á Vikunni) og tók eftir systrum þínum í leiðinni... Var alveg viss um að þetta hlytu að vera systur þínar!

19:21  

Post a Comment

<< Home