Lífslistin og lystin
Lífið er yndislegt, það er svo gaman að lifa. Verkefnin hrannast upp, myrkrið grúfir yfir öllu, lystin er næg en samt er gaman. Það er leikfimin, fjölskyldan, vinirnir, vinnufélagarnir, nóg til að gleðjast og kætast yfir. Árshátíðin okkar er um næstu helgi og ég keypti mér að sjálfsögðu nýjan kjól. Það lagðist ekki jafn illa í mig og oft áður. Kjóllinn minn í fyrra var svo vel heppnaður og flottur, hann vakti verulega eftirtekt. Kjóllinn í ár er mun einfaldari og látlausari, „the little black dress“ en flottur engu að síður í einfaldleik sínum. Hann er sleiktur utan á mig, svo þröngur er hann, og samt keypti ég hann! Þetta hlýtur að vera þroskamerki. Batnandi mönnum er best að lifa, eins og segir.
PS: Nú er orðið nægilega áliðið dags og hæfilega margir í fríi þ.a. ég get óhindrað hlustað á tónlist og „dansað“ í stólnum. Skemmtilegt!
PS: Nú er orðið nægilega áliðið dags og hæfilega margir í fríi þ.a. ég get óhindrað hlustað á tónlist og „dansað“ í stólnum. Skemmtilegt!


0 Comments:
Post a Comment
<< Home