Flækjur
Í dag blaðaði ég í Hello tímaritinu á biðstofu. Þar var ítarleg umfjöllun um hárlengingar, ekki fyrir venjulegt hár heldur augnhár - já, augnhár.
Ég þekki ungan mann, einstaklega fagureygðan, með löng, dökk, þétt og uppsveigð augnhár. Allar konur öfunda hann af augnumbúnaðinum. Það var hins vegar einhverju sinni, þegar hann var ennþá bara ungur drengur, að mér fannst hann vera svolítið einkennilegur til augnanna. Þá hafði hann tekið sig til og snyrt augnhárin. Hann var sköllóttur til augnanna. „Veistu hvað það er óþolandi þegar augnhárin flækjast og maður getur ekki opnað augun!“ sagði hann með þjósti þegar ég hafði orð á þessum einkennilega augnumbúnaði. Ég hló svo mikið að ég meig næstum því nið'rúr.
Þessi ungi maður þarf ekki að fara háralengingar a la J'Lo. Ekki heldur í augnhárapermanent.

4 Comments:
þetta eru genetiskir eiginleiki..
Já, fylgir Y-litningnum, a.m.k. í okkar fjölskyldu.
við ættum kannski að nota maskara fremur en maska, en fer þá ekki allt í mask ef maður mask
Jú, það er hætt við því, annars held ég að maskarinn sé óþarfur fyrir Y-ið, genin hafa séð fyrir því.
Post a Comment
<< Home