Sunday, January 01, 2006

Gleðilegt ár!

Nú er enn eitt árið runnið í garð, árið 2006. Ég segi bara eins og tengdamóðir systur minnar: „Ég er rétt nýbúin að læra að segja 2000!“ Að venju var áramótum fagnað í góðum frændgarði, foreldrar mínir, systur og fjölskyldur þeirra ásamt tengdamóður systur minnar. Og svo náttúrulega mín eigin fjölskylda. Fertugustu og fimmtu áramótin mín. Að sögn foreldra minna hef ég vakað þau öll, meira að segja þegar ég var á tólfta sólarhring. Ég er nefnilega svo ung, þótt árin séu orðin þónokkur er ég alltaf með þeim yngstu sem fæddir eru sama ár og ég.

Gleðilegt ár!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home