Tengdó og tólin
Það er eitt og annað sem leynist í skoti Fingurbjargar þegar vel er leitað. Við hjónin vorum eitthvað að ræða um tengdamóður mína í gærkvöldi, svona á milli svefns og vöku, og þá rifjaðist upp fyrir mér þegar þau hjónin, tengdaforeldrar mínir, voru nýflutt til Reykjavíkur. Það þurfti að setja nýjar klær á einhver rafmagnstæki. Tengdamóðir mín vippaði þá upp á eldhúsborð verkfæratöskunni sinni með tólunum sínum og byrjaði að skipta um klær. Hún átti nefnilega tólin! (Ekki misskilja mig, tengdapabbi átti líka sín tól.)
Þarna sá ég eitthvað nýtt, tengdamóðir mín sem var alltaf afskaplega fín og falleg dama, alltaf með lakkaðar neglur og varalit, var líka sjálfstæð kona sem gat bjargað sér með það sem aðrir kölluðu „karlmannsverk“. Af henni lærði ég margt.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home