Monday, May 08, 2006

Meistarar

Systir mín, „sú danska“, hefur unnið það frækilega afrek að ljúka meistaraprófs ritgerð sinni. Hún útskrifast því í sumar, á réttu róli. Þetta er frábært hjá henni, með tvær litlar og krefjandi dætur. Til hamingju!

Litla systir okkar, „sú hollenska“, lauk sinni ritgerð og prófi úr henni í ágúst s.l. Systur mínar eiga engan sinn líka í dugnaði og elju, nema ef vera skyldi móður okkar sem fer í meistaranám í haust í íslenskum bókmenntum. Þetta eru allt miklir meistarar.

5 Comments:

Anonymous Anonymous said...

en þú, sú stóra, varst náttúrlega trendsetterinn og kláraðir dæmið fyrir rúmum áratug ... sýnir hvað við vorum seinar að taka við okkur ;)
,,sú hollenska"

11:08  
Blogger Fingurbjörg said...

Þetta hljómar vel, trendsetter! Annars snýst þetta fyrst og fremst um að drífa sig, hvenær sem það er gert. Átakið er alltaf mikið, það er svo fj... erfitt að læra.
„Sú skoska“

11:14  
Blogger ærir said...

enda allar af sterkum og heilsteyptum konum komnar, -ekki satt mín kæra fingurbjörg.

11:42  
Blogger ærir said...

þetta með steypuna fannst mér afar viðeigandi m.t.t. daglegra viðfangsefna þinna

11:43  
Blogger Fingurbjörg said...

Jú, jú, steypan er afskaplega viðeigandi. Steypa er líka afskaplega fallegt og margbreytilegt efni.

Ég þakka líka hlý orð um formæður okkar, og jú, mikið rétt, þær voru afskaplega sterkar og heilsteyptar.

11:50  

Post a Comment

<< Home