Monday, June 12, 2006

Einingavitleysa

Í vetur sem leið pantaði ég ægilega fín rannsóknartæki - skerbox. Boxið er þannig úr garði gert að botninn er laus. Þegar ég fór að nota það tók ég eftir því að botninn stóð niður fyrir mótið sem nemur um 2 mm. Það þýðir að ekki þarf nema að lyfta boxinu einu sinni upp og setja það niður til að sýnið í því sé á fleygiferð - sem er ekki gott því hver millimetra skiptir máli þegar rúmþyngd efnisins er reiknuð og hún skiptir ákaflega miklu máli fyrir niðurstöðurnar.

Nema hvað, eftir þó nokkra tölvupósta fram og aftur yfir Atlantshafið tókst okkur hér að fá seljendur til að senda okkur nýjan botn. Tók ekki nema svona 6 vikur, kannski 8. Svo kom nýr botn í dag og viti menn ... þvermál nýja botnsins er 63,5 mm (= 2,5") en skerboxið er með innra þvermál 60 mm - sem sagt, alveg vita vonlaust mál að koma „nýja“ botninum í skerboxið (því það er líka augljóst að „nýi“ botninn er gamall og lúinn, þ.e. notaður).

Það þarf að gæta sín á því hvaða einingar eru notaðar, millimetrar eða tommur!

2 Comments:

Blogger ærir said...

ég aðhyllist tommur þegar mæla þarf stórt .... :)

20:19  
Blogger Fingurbjörg said...

Fer það nú ekki eftir því hvað mæla skal? ......

09:33  

Post a Comment

<< Home