Skógrækt
Við hjónin fórum austur í landið okkar á sunnudaginn var. Markmið ferðarinnar var tvennt: Annars vegar að sjá hvernig öspunum vegnaði en Ærir og skógfræðingurinn plöntuðu nokkur hundrum öspum einn góðviðrisdaginn í maí. Hins vegar að planta nokkrum nýjum plöntum. Fyrir valinu urðu ein grenihrísla og nokkrar birkispírur. Það verður gaman að fylgjast með vexti þessara plantna. Það kjarr sem fyrir var hefur vaxið mjög.


0 Comments:
Post a Comment
<< Home