Friday, June 30, 2006

Kapp

Ég er óvenju kappsfull kona og fljót að hugsa. Stundum er kappið svo mikið og ég svo snögg að ég er búin að:
  • Skella bílhurðinni í andlitið áður en ég er búin að færa líkamann úr stað.
  • Strauja á mér hendina áður en mér hefur tekist að færa hana til.

Á þennan hátt hefur mér tekist að krambúlera ýmislegt fleira, bæði á öðrum en þó fyrst og fremst á sjálfri mér.

Þessi asi hefur yfirleitt mikla kosti. Ég er t.d. orðin „tölvunörd“ að mati margra vinnufélaga minna þótt aldrei hafi ég „lært á“ tölvur. Á brölti mínu um lyklaborð og mýs hefur mér tekist að læra hin ýmsu töfrabrögð til að sjá við Microsoft forritunum. Viðkvæðið í vinnunni á meðal samstarfsfélaga er því „meira að segja Fingurbjörg getur þetta ekki“ ef eitthvað er óvenju erfitt.

2 Comments:

Blogger ærir said...

komum í kapp

18:50  
Blogger Fingurbjörg said...

helst ekki í því að strauja hendur eða skella bílhurðum framan í fólk ... eins og mér hættir til að gera við sjálfa mig ...

14:55  

Post a Comment

<< Home