Monday, June 19, 2006

Áfram stelpur!

Eruð þið örugglega ekki allar í bleiku í dag? Ég er með bleikan varalit og í topp með bleikum blómum og bleikum bryddingum.

Annars er ég mjög lítið fyrir kvenna þetta og kvenna hitt, femínista og rauðsokkur. Mér finnst að verkin eigi að tala, ef við viljum standa jafnfætis köllunum verðum við að geta gengið í hin ýmsu verk og þora að taka að okkur störf sem bera ábyrgð. Eða eins og segir á góðum stað: „Fordæmið er ekki aðeins venjulega leiðin til að hafa áhrif. Það er eina leiðin.“ Svo eru nýju lögin um fæðingarorlof algjör snilld, ég held þau séu eitt stærsta skrefið í átt til jafnréttis kynjanna sem stigið hefur verið í langan tíma. Og það er skref sem skilur eftir far, eina farið sem atvinnurekandinn finnur fyrir. Síðast nú í morgun sat ég á fundi með köllunum (a) þar sem fæðingarorlof föður barst í tal. Einum af eldri kynslóðinni fannst þetta vera orðið dálítið mikið, þrír mánuðir og svo bættist sumarfríið við! Hver átti að sinna starfinu á meðan?

(a: Kallarnir eru allir hluthafar í fyrirtækinu þar sem ég vinn, ég er eina konan sem sit þessa fundi reglubundið án þess að vera ritari og jafnframt sú eina sem er ekki hluthafi.)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home