Flygill og Glói
Hestarnir mínir, þeir Flygill og Glói, eru bestu hestar sem ég þekki. Þeir eru traustir og áreiðanlegir, viljugir og hlýðnir (svona að mestu leyti). Ég er nýkomin úr níu daga hestaferð, riðum frá Hjörsey á Mýrum að Búðum undir Snæfellsjökli með viðkomu í flestum eyjum og skerjum sem fyrirfinnast á leiðinni.
Mestan hluta leiðarinnar var ég í forreið og gjarnan fremst, sérstaklega á Flygli en honum þykir ekki slæmt að leiða hópinn. Flygill prjónaði einu sinni með mig, þá þarf ég ekki lengur að velta því fyrir mér hvernig tilfinning það er. Ég fór líka með Flygil á sund í Búðaósnum. Hann er djúpsyndur, hefur sennilega aldrei áður farið á sund því fyrst sökk hann svo að aðeins augu og eyru stóðu upp úr. Áður hef ég farið með Glóa á sund og vöknaði varla við það, enda Glói með afbrigðum hávaxinn og glæsilegur hestur.
Ég náði Flygli á tölt í ferðinni. Áður vorum við búin að æfa okkur á bökkum Rangár þar sem við eyddum tveimur vikum í æfingar.
Hestaíþróttin er með því skemmtilegra sem ég hef tekið mér fyrir hendur og á vel við mig. Hestaferðirnar eru bestu frí sem hægt er að fara í.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home