Hrossahnegg
Til skamms tíma hneggjaði síminn minn þegar hringt var í hann. Síðan varð ég fyrir einelti á vinnustaðnum vegna hringingarinnar (a) og ég breytti stillingunni. Þá brá svo við að samstarfsfólkið kvartaði og bað um hneggið þannig að nú hneggjar síminn minn aftur. Mikið sem það er notalegt hljóð. Verst að ekki skuli vera hægt að fá lyktina líka ...
(Ég er ein þeirra sem hef ekki almennilega áttað mig á mismuninum á borðsíma og farsíma, ég skil báða eftir á borðinu mínu í vinnunni. Þegar ég er í vinnunni. Enda er alltaf hægt að ná í mann í vinnunni, hvergi flóafriður fyrir fólki og símum. Og tölvum líka.)

2 Comments:
Nýlega eftir að vera flutt á skrifstofu á nýjum stað heyrði ég allt í einu hanagal um hábjartan dag - verð að viðurkenna að það tók mig smá tíma að átta mig á því að um farsímahringingu var að ræða... :-) Alveg úti að aka í þessum hringitónum.
Ég get valið um ýmis dýrahljóð og tónverk en ekki venjulegt bjölluhljóð.
Post a Comment
<< Home