Tuesday, September 26, 2006

Fyndið fólk

Í gær var ég á fundi í Manchester sem gekk ótrúlega vel. Við vorum fjögur frá Íslandi að selja ákveðna vöru héðan (a,b,c). Félagar mínir svifu um á ljósrauðu skýi eftir fundinn, hann gekk svo vel. Mitt hlutverk í þessu verki er tæknilegs eðlis og eðli málsins samkvæmt benti ég á hina og þessa eiginleika vörunnar sem eru annars eðlis en það sem væntanlegur kaupandi hefur í dag. Kúnninn var hins vegar svo áfjáður í vöruna okkar að hann sá engin vandamál, hann hafði aðallega áhuga á því að fá efnið frá okkur.

Það er gaman að taka þátt í svona verkefnum.

a: Selja ... varan er ekki komin í framleiðslu, áður en hægt er að fara svo langt þarf að finna rétta markaðinn þ.a. hægt sé að skilgreina eiginleika vörunnar.
b: Þessi útskýring er svona verkfræðileg nákvæmni sem einkenni mig og ég hef oft fengið skot á fyrir í gegn um tíðina.
c: Í því umhverfi sem ég starfa í í dag er ég mjög langt frá því að vera nákvæm.
PS: Það fólk sem situr marga fundi er fyndið, ekki satt?

0 Comments:

Post a Comment

<< Home