Wednesday, October 04, 2006

Síðasta prófið

Nú er ég búin að semja síðasta prófið mitt! Eintómt „copy - paste“ eða „afrita - líma“ eins og það hljómar á íslensku. Ég átti meira að segja svörin til líka. Einfalt. Enda er mál að linni.

2 Comments:

Blogger Guðný Pálína said...

Ertu þá alveg hætt að kenna? Eða ertu bara búin með þessa önn? Ég er sjálf alveg dauðfegin að hafa hætt að kenna, eyddi alltaf svo skelfilega miklum tíma í undirbúning, alltaf að breyta og bæta, og laun stundakennara eru ekki í neinu samhengi við vinnuframlagið, a.m.k. ekki þegar maður er svona hyper-samviskusamur...

19:29  
Blogger Fingurbjörg said...

Já, ég er hætt! Launin eru í engu samræmi við þann tíma sem maður eyðir í kennsluna, jafnvel þótt maður gjörþekki efnið og sé búinn að kenna sama námsefnið árum saman. Maður þarf alltaf undirbúa sig til að vita hvað maður ætlar að segja, það skuldar maður nemendum. Ég er dauðfegin að vera búin að taka þessa ákvörðun.

17:20  

Post a Comment

<< Home