Skriffinnur
Núna rétt í þessu var ég að senda frá mér eina af síðustu útgáfunum af mínum hluta skýrslunnar til Evrópusambandsins sem ég hef verið að vinna að (stopult) undanfarin ár. Fyrstu orðin voru skráð þann 4. mars árið 2001 þegar metnaðarfullt rannsóknarverkefni var afmarkað (ég er búin að fara á verkefnisstjóranámskeið, þar lærði þetta orðfæri). Það var skorið niður og endaði í tengslaneti (network) - ég mæli ekkert endilega með því fyrirkomulagi. Það er mjög skemmtilegt að kynnast öllu fólkinu sem ég hef hitt í gegn um þetta samstarf en faglegur afrakstur - ? Það kemur í ljós.
Ég er að hugsa um að skála í kampavíni þegar verkefninu lýkur formlega og bjóða fólkinu mínu á rannsókn og öðrum velunnurum í fagnaðinn.

Spennandi myndir, ekki satt? Möluð steypa (að ofan) og steinbræðingur (artificial aggregate, advanced LWA). Sexí!

0 Comments:
Post a Comment
<< Home