Ég er snillingur!
Litli kúturinn minn hringdi í gærkvöldi, bíllinn hans fór ekki í gang. Ég mætti á svæðið, á háum hælum, í kjól og með lokkaflóð (eða næstum því), skveraði mér inn í bílinn, setti hann í 2. gír, svissaði á bílnum og kom honum í gang á svipstundu. Hver segir að konur geti ekki bjargað sér?


5 Comments:
þetta geta ekki allir kallar.
R
sérstaklega ekki ef þeir eru á háum hælum og í kjól
r
Treystu mér - það hjálpar að vera á háum hælum og í kjól! Get in touch with your feminine side. -f
já mútta þú ert best í heimigeimi
Krúttið mitt, þú ert yndislegur! Allt fyrir þig ;-))
Post a Comment
<< Home