Sunday, January 29, 2006

Hófið

Á föstudagskvöld var þorrablót á vinnustaðnum mínum. Mjög glæsilegt eins og allt sem hér er gert; góður matur, góðar veigar og gott fólk. Það var tvennt sem ég staðfesti: Hákarl er vondur og brennivín er gott, ískalt. Og svo þetta gamalkunna, meðalhófið er best!

3 Comments:

Blogger ærir said...

Þú hefur ekki farið ríðandi á honum Hófi? Eða farið fram úr Hófi.

09:53  
Blogger Fingurbjörg said...

Nei, en það hefði verið svakalega skemmtilegt!

09:56  
Blogger ærir said...

Vona að þetta hafi ekki átt við.

Það gerðist í svolitlu hönnunar shjóvi
í súrmetis- og hákarla fnyksins kófi
að stutta fékk stund
daman sér blund
því brennivíns hún neytti ekki hófi

12:26  

Post a Comment

<< Home