Tuesday, April 25, 2006

Allur pakkinn

Í starfi mínu kem ég að flestum þeim verkefnum sem í er tísku að hallmæla og hafa andstyggð á af landsmönnum: Kárahnjúkavirkjun, álver á Reyðarfirði, Grundartanga og Húsavík, Norðlingaölduveita, Tónlistar- og ráðstefnuhús (ég veit að vísu ekki hvort fólk er búið að fatta að það er hægt að hafa andstyggð á því verkefni, nema fólk sé búið að ákveða að það eigi að verða ástfangið af því), sumarbústaðaframkvæmdir fyrir banka og bankastjóra og framkvæmdastjóra, og svo má lengi áfram telja.

Mér finnst þessi verkefni vera ögrandi og skemmtileg, ég læri stöðugt eitthvað nýtt á hverjum degi og nýt þess að mæta í vinnuna til að takast á við það sem þarf að leysa. Það þýðir ekki endilega að ég sé hrifin af öllum þessum framkvæmdum en þetta er það sem fólk kaus. Við höfum öll haft val, um árabil, og þetta er það sem meirihluti landsmanna kaus yfir sig.

2 Comments:

Blogger Guðný Pálína said...

Alltaf gaman að fást við krefjandi verkefni og sjá árangur af vinnunni sinni!

P.S. Ég vissi ekki að þú værir byrjuð að blogga - velkomin í bloggheima :)

14:12  
Blogger Fingurbjörg said...

Ég hef verið laumubloggari.

14:32  

Post a Comment

<< Home