Í sporum annarra
Um helgina leigði ég mér myndina „In her shoes“ með Cameron Diaz, Toni Collette og Shirley MacLaine m.m. Myndin fór fram úr væntingum mínum, mjög svo. Aðalefni myndarinnar er mjög svo klassískt, við erum stöðugt að óska þess að við værum í sporum annarra. Oft þarf að ýta við okkur til að við áttum okkur á því hvað við höfum og, ekki síður, hvers við erum megnug.
Myndin gerist að hluta til í samfélagi eldri borgara, þar kemur Shirley MacLaine sterk inn. Mér finnst hún og þeir eldri borgarar sem leika með henni óborganlegir. Flestir eldri borgaranna voru að þreyta frumraun sína á listabrautinni, það er þess virði að sjá myndina eingöngu vegna framlags þeirra.

1 Comments:
Á yfirborðinu er þetta svona ljósku mynd en síðan leynist ýmislegt fleira í þessari mynd þegar vel er að gáð. Það sama finnst mér eiga við um t.d. myndina „Something's gotta give“ með Jack Nicholson, Diane Keaton o.fl. (Frances McDormand gefur myndinni sterkan svip þrátt fyrir lítið hlutverk). Þetta eru myndir sem menningarvitarnir „horfa ekki“ á en ég hef voðalega gaman af, enda er ég svo einföld sál sem hef gaman af margvíslegu fólki.
Post a Comment
<< Home