Wednesday, April 26, 2006

„Ég“

Það er eitt efni sem fólk hefur að öllu jöfnu meiri áhuga á en annað: „Ég“. Margir hafa gert sér þennan áhuga að féþúfu. Í boði eru alls kyns bækur og námskeið um „mig“ o.fl. o.fl. Fólk lætur glepjast í sífellu, sumir oftar en aðrir. Oft er þetta fært í fínan búning, ég fór til dæmis á námskeið í vetur sem hét leiðtogaþjálfun - hver vill ekki læra að verða betri leiðtogi? Í reynd var þetta dulbúið námskeið um „mig“. Hver þátttakandi fékk heila bók þar sem fjallað var um jákvæða eiginleika hvers og eins. Mín bók liggur á náttborðinu mínu, ég verð nú samt að viðurkenna að ég hef ekki flett henni mikið síðan á námskeiðinu. Ég er líka á öðru námskeiði sem heitir verkefnisstjórnun, inn í námsefnið er búið að lauma inn atriðum sem snúa að „mér“.

Eitt er þó kannski klassískara en annað, stjörnuspeki. Þar er mikill fjöldi í boði og þetta er efni sem sennilega fæstir þora að viðurkenna að þeir skoði en sennilega laumast flestir til skoða sjálfan sig í spegli stjörnuspekinnar einhvern tíma á lífsleiðinni. Í morgun lét ég glepjast, ég keypti stjörnukort á vef Morgunblaðsins. Og viti menn, hálfri sekúndu eftir að ég var búin að slá inn kreditkortanúmerið mitt birtist mér lýsing á sjálfri mér. Eintóm lofrulla og allt náttúrulega hárrétt og satt.

Annars er þetta bara tóm tjara, getur átt við hvern sem er og ekkert annað en peningaplokk. Svona er maður nú hégómagjarn.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home