Partíið
Síðast liðinn föstudag var partíið okkar í Dótalandi. Tæplega 500 manns var boðið auk starfsfólks, hjá fyrirtækinu starfa um 150 manns. Ætli það hafi ekki komið svona 150-200 manns, ég er mjög ánægð með þá mætingu.
Allt tókst einstaklega vel, skreytingar til fyrirmyndar. Falleg og sumarleg blóm á steypusívalningum. Nægar snittur, bjór og léttvín (við eigum nóg af drykkjarföngum í aðra veislu). Guitar Islancio spilaði fyrir gesti, þeir eru náttúrulega bara snillingar. Karlakór Reykjavíkur söng nokkur lög sem hljómuðu einstaklega vel í salnum okkar. Veðrið lék við hvern sinn fingur, sólskin og milt veður.
Rúsínan í pylsuendanum var síðan pressan gamla, jafnaldra mín, sem var afhent LV við hátíðlega athöfn. Það var búið að mála hana til samræmis við upphaflegt útlit, festa á hana gylltan skjöld með eignasögu og verkefnasögu og prenta einblöðunga með sögu pressunnar í hnotskurn.
Allt mjög glæsilegt og vel heppnað.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home