Tuesday, February 07, 2006

Dótadagur í Dótalandi

Í gær var dótadagur í Dótalandi en þó með örlítið breyttu sniði. Í staðinn fyrir að allir krakkarnir kæmu með dót að eigin vali að heiman fengu allir krakkarnir að koma í Dótaland og opna pakka með nýja dótinu. Það var mikið spáð og spekúlerað og stjörnur í mörgum augum yfir öllu nýja dótinu. Og útlenskt nammi fylgdi með, ekki skemmdi það fyrir gleðinni. Næsta gleðistund verður í næstu viku þegar kennarinn kemur frá útlandinu og við fáum að leika okkur með sandinn og drullumalla í nýju tækjunum.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home