Tuesday, February 07, 2006

Eldflaug

Við Ærir fórum í góðan reiðtúr á Hófi og Glóa um helgina. Þetta eru heimsins bestu hestar, á því leikur ekki vafi. Báðir töltsæknir og mjúkir, báðir ólatir, eiginlega bráð ólatir. Hann Glói minn, sem ber af öðrum hestum hvað fríðleika og hæð varðar, sækir stöðugt í sig veðrið. Fyrst eftir að við fengum hann var hann stífur og stirður lullari en með markvissum leikfimiæfingum og ferðalögum hefur okkur tekist að liðka hann og ná fram töltinu í honum. Núna er kominn í hann kraftur og vilji sem ekki var áður til staðar, hann er að verða eldflaug.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home