Monday, February 13, 2006

Læknaneminn

... er að fara á taugum yfir taugalíffærafræði, höfuð og háls. Hér er lesið allan sólarhringinn og dugir ekki til. Nú er kappinn fluttur til afa og ömmu, þykir eitthvað betri lýsing þar þessa dagana. Ég hef aldrei séð hann svona stressaðan, ekki fyrir nein sundmót, stór eða smá.

Og leiklistarneminn situr sveittur og reynir að finna allar mögulegar og ómögulegar aðferðir til að hlæja ekki á sviði. Það er ekki hans sterkasta hlið, þ.e. að kæfa hlátur. Og svo sprakk hann, náttúrulega, á generalprufunni í dag. Fúlt. Gengur vonandi mun betur á morgun á frumsýningunni þar sem stórfjölskyldan og vinirnir verða mætt á svæðið. Hann er svo mikill sölumaður að hann er búinn að selja hálfri Reykjavík miða á leikritið. Mikið yndi og ljós, bræður báðir reyndar.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home