Tuesday, April 04, 2006

Heppin

Ég er alltaf svo heppin, hef ávallt talið mig fædda undir heillastjörnu. Í morgun fór ég t.d. upp á heiði að mæla vatnshæð í borholum, þurrt, stilla og snjór, afskaplega fallegt veður og notalegt að athafna sig. Ég var síðan varla sest inn í bílinn minn þegar fór að rigna og það að hellirigna. Ég hefði orðið holdvot á tveimur mínútum ef ég hefði verið tveimur mínútum seinna á ferðinni. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem sambærilegar veðurbreytingar verða eftir að ég er búin að mæla á heiðinni.

Svona er ég alltaf heppin.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home