Monday, March 27, 2006

Sig og missig

Fyrsta verkefnið fyrir nýjustu tækin okkar í Dótalandi kom í hús í síðustu viku. Ég komst loks í það á föstudag, fyrst þurfti að stilla/kvarða tækið og átta sig á því hvernig forritið virkaði og síðan þurfti að trimma til sýni. Þegar þetta var allt komið í lag setti ég prófið í gang, efni af höfuðborgarsvæðinu. Efnið reyndist svo lélegt að það lak undan því sem næst engu álagi og var fullsigið við 50 kPa álag (það álag er svipað því að leggja 50 g lóð ofan á handarbakið á sér).

Annars er ótrúlega skemmtilegt að fikta í tækjunum, þurfti svo sannarlega á því að halda því forritið var aðeins að stríða mér og ég þurfti að endurtaka allt.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home