Húsið var fullt ...
... af læknanemum þegar ég kom heim í gær. Þau voru að vinna efni fyrir kynningu sem þau eru með í dag. Það var afskaplega ljúft að heyra í þeim glaðværðina og hlátrasköllin. Viðkunnanlegir krakkar.
Að því loknu hljómuðu gítartónar af neðri hæðinni þar sem stúdentsefnið var að æfa gítargripin sín. Hann fékk nefnilega þá flugu í hausinn fyrir skömmu að kenna sjálfum sér á gítar og það gengur mjög vel. Nú langar hann að komast í tíma til kennara.
Það er best þegar húsið iðar af lífi, sem það gerir flesta daga.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home