Tuesday, March 14, 2006

Montin mamma!

Litli kallinn minn lék í skólaleikriti skólans síns í vor. Í Mogga dagsins í dag er gagnrýni. Þar fær kúturinn minn eftirfarandi leikdóm:

„Af leikurum vekja mesta athygli [litli kall Ærisson] sem gerir smákrimmann góðhjartaða, Ella, að stærri persónu en hlutverkið gefur tilefni til. “

Mamman er ekkert smá montin því ekki lýgur Mogginn!

Og læknaneminn náði vitanlega sínu prófi, því sem stressaði hann sem mest um daginn. Náði að sjálfsögðu inn á topp tíu-listann.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home