Wednesday, March 22, 2006

Í dag ...

... eru liðin 23 ár síðan ég gekk af Grettisgötunni á fæðingardeild Landspítalans, kasólétt í tíu gráðu frosti í aukaskoðun og var lögð inn „med det samme“. Ég var sett á stranga rúmlegu, mátti ekki einu sinni pissa í klósett, heldur var bundin við rúmið í tvo sólarhringa. Það reyndist orkubolta eins og mér erfitt, ég hoppaði og skoppaði um rúmið þessa tvo sólarhringa. Þegar rúmlegunni létti (= mátti labba tvö skref inn á klósett til að pissa en var keyrð um í hjólastól fyrir allt annað) hafði ég lést um 3 kg.

Frumburðurinn, læknaneminn, fæddist síðan sex dögum síðar, þann dag sem settur var á fæðinguna. Við höfum alltaf verið nákvæm og stundvís, ég og hann.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home