Monday, April 17, 2006

Páskahretið

Það er segin saga, um hverja páska má eiga von á hreti. Engin undantekning í ár. Ég fékk minn skerf af hretinu, lá einn dag í bælinu alveg bakk. Drakk sem svaraði hálfu glasi af kók sem ég skilaði jafnharðan aftur. Hef verið pínulítið „under the weather“ síðan en náði þó að gæða mér á páskalambinu í faðmi stórfjölskyldunnar í gær.

Systir mín og fjölskyldan hennar fara til Danaveldis á morgun, verða þar í tvo mánuði. Páskaunginn minn og hans kærasta gæta íbúðar systur minnar næstu 6-7 vikurnar, eða þar til þau fá sína íbúð. Já, páskaunginn minn er að verða fleygur og flýgur brátt úr hreiðrinu. Hann er meira að segja búinn að fjárfesta í ryksugu með sinni kærustu, þau eru að verða stóreignafólk! (Ég vona að þau fyrirgefi mér að ég skuli opinbera þetta hér á þessum vettvangi, mér finnst þetta bara svo fyndið.)

2 Comments:

Blogger ærir said...

þetta er stórt skref hjá "litla stráknum". hef sérstakt yndi af ryksugunni. vonandi að góðar notkunarleiðbeiningar fylgi með.

14:46  
Blogger Fingurbjörg said...

Já. Systir lét ekki við það sitja að lána þeim íbúðina sína heldur bauð hún þeim ýmis eldhúsáhöld úr búi tengdaföður síns heitins, hans Sigga Bald, blessuð sé minning hans. Þau fylltu bílinn af kössum. Það er ekki amalegt fyrir þau að eiga svona góða að!

14:51  

Post a Comment

<< Home